Um Veiðifélagann
Veiðifélaginn er forrit í snjallsíma sem auðveldar skotveiðimanninum veiðarnar með hjálp GPS tækninnar. Veiðifélaginn gefur til kynna hvort veiðimaðurinn sé staddur á landi í einkaeign eða á svokölluðu þjóðlendi þar sem skotveiðar eru leyfilegar. Sýnir einnig upplýsingar eins og hversu langt er í næsta þjóðlendi og hvar friðuð svæði séu. Í forritinu er hægt að finna upplýsingar um hvenær á árinu má veiða hvaða fugla- og dýrategundir. Það er einnig hægt að sjá sólarupprás og sólsetur á ákveðnum degi og veðurspá á landinu. Veiðimaðurinn getur skráð niður ýmislegar upplýsingar í dagbók í forritinu og einnig merkt inn svæði á kortið eins og til dæmis hvar bíllinn er staðsettur eða hvar ákveðinn fugl var veiddur.
Veiðifélaginn er öflugt öryggistæki þar sem það gerir skotveiðimanninn sýnilegan öðrum veiðimönnum á svæðinu sem hafa „veiðifélagann“ í snjallsímanum sínum og getur jafnframt nýtt GPS tæknina til neyðarsendinga. Þessi tækni er til staðar en hinsvegar voru engin álíka tæki sem búa yfir öllum þessum upplýsingum á einum stað fundin við frumathugun með notkun leitarvéla.